PRÓFAÐU GOLD DÝNU Í 100 NÆTUR
Góður nætursvefn er forsenda vellíðunar og heilbrigðis.
Það tekur að öllu jöfnu nokkrar vikur að venjast nýrri dýnu.
Til þess að vera viss um að kaupa rétta dýnu sem hentar þér færð þú 100 daga til að ákveða þig. Ef hún hentar þér ekki, þá getur þú skipt henni út fyrir aðra dýnu.
Viljir þú skipta út dýnunni þá er nauðsynlegt að hafa afrit af kvittun og gæta þess að dýnan sé hrein, heil og óskemmd.
Veljir þú dýrari dýnu í stað þeirrar sem þú skilaðir greiðir þú mismuninn. Veljir þú ódýrari dýnu, þá getur þú keypt aðra vöru sem þig vantar fyrir mismuninn eða fengið inneign á gjafakorti.
Það er ekki hægt að skila og fá endurgreidda dýnu, en við komum til móts við viðskiptavini með inneign ef önnur dýna hentar ekki.
Reynslutími gildir fyrir öll GOLD rúm og dýnur (boxdýnur, stillanleg rúm, springdýnur, svampdýnur og Continental dýnur).
100 daga skiptiréttur gildir ekki um Gold yfirdýnur sem eru seldar stakar.